Quantcast
Channel: mbl.is - Forsíðufréttir
Viewing all articles
Browse latest Browse all 19525

Íslenska treyjan hangir uppi á pizzustað á Ítalíu

$
0
0
Francesco Forino, Monika Bruqaj og Hildur Heimisdóttir sameinast í aðdáun á knattspyrnu og alveg sérstaklega íslenska karlalandsliðinu. Starfsmenn ítalska veitingastaðarins Pizzeria Monaco í miðborg München í Þýskalandi eru ákveðnir í að láta fjarveru ítalska landsliðsins á HM í sumar ekki slá sig út af laginu. „Auðvitað er hræðilegt að Ítalía sé ekki með, en við heilluðumst alveg af íslenska liðinu á síðasta Evrópumeistaramóti og ætlum að halda með því á HM,“ skrifaði Monika Bruqaj, rekstrarstjóri staðarins, í bréfi hingað til lands.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 19525