![Kannabis.]()
Lögreglan á Suðurnesjumlagði hald á nær hundrað grömm af kannabisefnum í húsleit sem gerð var í umdæminu um helgina. Farið var í húsleitina að fengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Grunur lék á að fíkniefnasala færi fram í húsnæðinu þar sem leitað var.