![Forsætisráðherra hjónin Jóhanna Sigurðardóttir og Jónína Leósdóttir á gangi um Forboðnu borgina.]()
Opinber dagskrá heimsóknar Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í boði Li Keqiangs, forsætisráðherra Kína, hófst í dag. Móttökuathöfn fór fram á Torgi hins himneska friðar, þar sem forsætisráðherrarnir könnuðu heiðursvörð og spilaðir voru þjóðsöngvar ríkjanna.