![Adda veitir krabbameinsfélaginu afrakstur söfnunarinnar.]()
Hin 14 ára gamla Adda Smáradóttir afhenti í morgun Krabbameinsfélagi Íslands fé úr söfnun sem hún stóð fyrir í upphafi árs. Adda missti móður sína úr húðkrabbameini árið 2011 og langaði að leggja sitt lóð á vogarskálarnar með peningasöfnun. Áður en yfir lauk hafði Adda safnað 580 þúsund krónum.