![Brandon Rozzell sækir að ÍR-ingum í Garðabænum í kvöld.]()
ÍR er komið í afar góða stöðu í einvígi sínu gegn Stjörnunni í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. ÍR vann 68:62-sigur eftir framlengingu er liðin mættust í Garðabænum í þriðja leik í kvöld. ÍR nægir því heimasigur í fjórða leik liðanna næsta mánudag til að tryggja sér sæti í úrslitum gegn annað hvor KR eða Þór Þorlákshöfn.