![Lögreglan á Suðurnesjum hefur frá áramótum krafist nálgunarbanns í fimm málum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist nálgunarbanns í einu máli og lögreglan á Selfossi í einu máli.]()
„Við viljum koma þeim skýru skilaboðum til fólks að ofbeldi á heimilum verði ekki liðið,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum, en lögreglan á Suðurnesjum hefur síðustu mánuðina lagt sérstaka áherslu á að rannsaka heimilisofbeldi.