![Blýkista er ofan í steinkistunni.]()
Fornleifafræðingar við Háskólann í Leicester hafa grafið niður á steinkistu sem var skammt frá þeim stað sem bein Ríkharðs III. fundust á í fyrra. Blýkistu hafði verið komið fyrir ofan í steinkistunni. Fornleifafræðingarnir segjast aldrei hafa fundið beinagrind sem búið er svona um.