![Björgunarbátur Landhelgisgæslunnar.]()
Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá þýskri seglskútu rétt eftir klukkan ellefu í gærkvöldi en skútan var í vanda 17 sjómílur vestur af Garðskaga. Aðstæður á vettvangi voru erfiðar og mikil mildi þykir að tekist hafi að bjarga öllum þeim sem voru um borð, eða tólf manns.