![Maðurinn var fastur inni í versluninni þegar lögregla kom á vettvang.]()
Maður sem grunaður er um tilraun til vopnaðs ráns í verslun úrsmiðsins Georgs V. Hannah í Reykjanesbæ var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Hann réðist inn í verslunina vopnaður öxi. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is.