$ 0 0 Írönsk stjórnvöld segjast hafa handtekið ótiltekinn fjölda bandarískra njósnara sem þau segja að hafi ætlað að reyna að trufla þingkosningar sem eru á næsta leiti í landinu. Heydar Moslehi, leyniþjónusturáðherra Írans, tilkynnti þetta í dag.