![Eldurinn var töluvert mikill.]()
Slökkviliðsmönnum frá slökkviliði Fjarðabyggðar tókst á ellefta tímanum í kvöld að ráða niðurlögum elds sem kom upp í yfirgefnu íbúðarhúsi í miðbæ Neskaupstaðar. Ekkert er hægt að segja að svo stöddu um eldsupptök en málið verður tekið til rannsóknar.