![Færðin er mjög slæm víða.]()
Eitthvað hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í kvöld og er færðin mjög slæm. Ökumaður bíls missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann valt á hliðina og þá urðu tveir árekstrar, en að sögn lögreglunnar voru þeir minniháttar. Engin slys urðu á fólki.