![Satya Nadella er nýr forstjóri Microsoft.]()
Satya Nadella, 46 ára gamall Indverji, var í dag skipaður nýr forstjóri bandaríska tölvufyrirtækisins Microsoft. Um leið tilkynnti fyrirtækið að Bill Gates hefði látið af störfum sem stjórnarformaður Microsoft en héðan í frá verður hann tæknilegur ráðgjafi þess.