![Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra.]()
„Mér þykir miður ef ég hef vegið nærri þingmanninum Steingrími J. Sigfússyni og bið hann afsökunar á því,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra á Alþingi í kvöld. Gerðist það eftir að allmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að hann yrði víttur fyrir orð sín. Af því varð ekki.