![Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis.]()
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, tilkynnti nú undir miðnætti í þingsal að þingfundi yrði haldið áfram enda væru enn tíu þingmenn á mælendaskrá. Þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu þá spurt ítrekað um það hvað forseti ætlaðist fyrir og fóru fram á það að þingfundi yrði slitið.