![Systir mannsins segir hann þó síður en svo eiga heima í fangelsi.]()
Maðurinn sem handtekinn var í Hraunbæ í gær er tæplega þrjátíu ára gamall. Líf hans hefur síður en svo verið dans á rósum því hann glímir við verulega greindarskerðingu, hefur margar greiningar og stríðir við eiturlyfjafíkn. Systir hans segir hann og fjölskyldu hans koma að lokuðum dyrum í kerfinu.