![]()
Fjölmargir leiðtogar vestrænna ríkja hafa í dag fordæmt aðgerðir rússneskra stjórnvalda á Krímskaga. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, og Vladímír Konstantinov, forseti héraðsþingsins á Krímskaga, skrifuðu í morgun undir formlegt samkomulag um að héraðið verði hluti af rússneska sambandsríkinu.