![Magnús Þór Jónsson]()
„Þessi lög voru samin árið 1973 og þá var seventís-músíkin í eyrunum á manni,“ segir Megas um lögin fimmtíu sem hann samdi árið 1973 við alla Passíusálma séra Hallgríms Péturssonar. Hann hyggst, í samstarfi við fjölmennan hóp listamanna, flytja í apríl í fyrsta skipti öll lög sín við sálmana.