![Snjóflóð féll í Bláfjöllum aðfaranótt fimmtudags.]()
„Þetta kom okkur að óvörum. Það rigndi gríðarlega þennan sólarhring. Myndast höfðu hengjur í því vonda veðri sem var þarna. Það kom okkur á óvart hversu hratt þetta gerðist og hversu stórt þetta var,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Bláfjalla, um snjóflóðið sem féll aðfaranótt fimmtudags.