![Hljómsveitin Pollapönk flytur framlag Íslands til Eurovision í ár.]()
Óttarr Proppé, tónlistar- og alþingismaður, verður ekki á sviðinu í Kaupmannahöfn á föstudaginn þegar Pollapönk æfir framlag Íslands, No Prejudice, fyrir Eurovision í ár. Þarf hann að skjótast aftur til Íslands til að taka þátt í úrslitum spurningaþáttarins Útsvari fyrir hönd Reykjavíkur.