![Anderson var dæmdur árið 2000 en hóf ekki afplánun fyrr en í júlí í fyrra.]()
Árið 2000 var Cornealious „Mike“ Anderson dæmdur í fangelsi fyrir vopnað rán í Bandaríkjunum. Í 13 ár gleymdu þarlend yfirvöld að láta Anderson hefja afplánun dómsins, eða þar til í júlí í fyrra. Þá var honum loks stungið inn. Í dag var Anderson sleppt eftir að hafa setið 10 mánuði á bak við lás og slá.