![Jón Gnarr, borgarstjóri, vildi horfa á Eurovision.]()
Jón Gnarr, borgarstjóri, kvartaði undan því á fundi borgarstjórnar fyrir stundu að verið væri að ræða hverfisskipulag í Reykjavík á sama tíma og Pollapönkarar væru á sviði í Eurovision-keppninni í Kaupmannahöfn. Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, furðar sig á slíkri forgangsröðun.