![]()
QPR tekur á móti Chelsea í fyrsta leik 4. umferðar ensku bikarkeppninnar sem er á dagskrá í dag. Heiðar Helguson leikur í fremstu víglínu QPR en hann skoraði sigurmarkið þegar liðin mættust í deildinni í október. Fylgst verður með leiknum hér á mbl.is en flautað var til leiks á Loftus Road klukkan 12.