![Fáar konur eru í efstu sætunum í tekjublaði Frjálsrar verslunar og hefur staðan lítið breyst milli ára.]()
Á laugardaginn kom út tekjublað Frjálsrar verslunar. Þar má sjá tekjur 3.500 Íslendinga á síðasta ári, en einstaklingum er skipt niður í 20 mismunandi flokka eftir störfum þeirra. Þegar horft er til tíu hæst launuðu einstaklinga í hverjum flokki má sjá að konur eru aðeins 11,5%.