![]()
Eiríkur Ingi Jóhannsson segist hafa fengið góð viðbrögð við frásögn sinni sem birtist í Kastljósi í síðustu viku. Lítið sé að gera við því þó einhverjir hafi viljað líta neikvætt á það. Eiríkur segist ætla aftur á sjóinn sem hann segist ekki óttast þrátt fyrir slysið hörmulega undan Noregsströnd.