![Norska parið Charlotte Hidle og Magnus Jenssen skáluðu í kampavíni í kristalsglösum með gestunum sínum þremur eftir að hafa gift sig.]()
Það er misjafnt hvernig fólk kýs að fagna því að hafa látið pússa sig saman í hjónaband. Norska parið Charlotte Hilde og Magnus Jenssen fór kannski heldur óvenjulega leið. Eftir að hafa gifts sig skáluðu þau í kampavíni í kristalsglösum með gestunum þremur fyrir utan Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur. Að sjálfsögðu var boðið upp á pylsur með kampavíninu.