![Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.]()
„Við munum bregðast við málinu á nákvæmlega sama hátt og við höfum verið að gera,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um viðbrögð sín við því að liðsmenn Outlaws-samtakanna skuli hafa skipulagt árásir á lögreglumenn. Ögmundur segir ofbeldi gegn lögreglu aldrei verða þolað.