![Lopapeysan sést hér tilbúin]()
Íslensku keppendurnir í snjólistaverkakeppninni í Breckenridge í Colorado í Bandaríkjunum hafa lokið keppni og er verk þeirra „Lopapeysa“ tilbúið. Hópurinn bíður í eftirvæntingu eftir að úrslit keppninnar verði kynnt en rúmur sólarhringur er þar til þau vita hvort þau komast á verðlaunapall.