![Lars Lagerbäck þungur á brún á hliðarlínunni í kvöld.]()
„Við munum greina þetta og læra af þessu,“ sagði Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Noregs í knattspyrnu, eftir 6:0-tap fyrir Þýskalandi í undankeppni heimsmeistaramótsins í kvöld. Þetta er versta tap Noregs í 45 ár og Lars var sjálfur að upplifa sögulega lægð.