![Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri tölvuleikjarisans CCP, í London á Þorláksmessu í fyrra. Hilmar segir mbl.is af nýrri sókn notenda í tölvuleikinn EVE Online eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á heimsbyggðinni um áramótin.]()
Nýjum notendum geimfjölspilunarleiksins EVE Online hefur sjaldan fjölgað sem síðastliðna viku, auk þess sem gamlir notendur leita aftur í leikinn, og segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, sem heldur leiknum úti, síðastliðna helgi hafa náð metspilun. Hilmar ræddi við mbl.is frá London í gær.