![Mynd er úr safni og sýnir þyrlu Landhelgisgæslunnar við slökkvistörf.]()
Mikill sinubruni er nú í Lundarreykjadal í Borgarfirði og leggur þykkan reykjarmökk yfir nærliggjandi svæði. Fyrr í dag greindi mbl.is frá því að lögregla og slökkvilið væru á leið á staðinn. Umfang brunans lá þá ekki ljóst fyrir en samkvæmt heimildum mbl.is er um talsvert mikinn eld að ræða.