![]()
Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er árásarmaðurinn meðlimur í skipulögðum glæpasamtökum. Ekki er vitað um líðan fórnarlambsins.