![Haltu áfram]()
Mikil samstaða íbúa Boston hefur komið í ljós eftir sprengingarnar sem urðu á mánudaginn við endamark Boston-maraþonsins. Hamza Syed, sem hefur búið í borginni í mörg ár, segir að andi maraþonsins hafi teygt sig út fyrir hlaupabrautina og inn í sorgarferlið. Til marks um þetta eru hlýleg orð sem fólk hefur skrifað á gangstéttir borgarinnar.