![Frá þingfestingu á amfetamínmáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun]()
Sjö karlmenn, sem ákærðir eru fyrir aðild að innflutningi á miklu magni af amfetamíni, svöruðu til saka í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Málið er eitt það stærsta síns eðlis um margra mánaða skeið. Starfandi tollvörður var hnepptur í gæsluvarðhald um tíma vegna málsins en var ekki ákærður.