![Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis]()
Umboðsmaður Alþingis telur að kjararáð hafi með úrskurði um laun forstöðumanna ríkisstofnana sem felldur var í júní 2011 ekki fullnægt rannsóknarskyldu stjórnsýslulaga. Ráðinu hafi borið að rannsaka betur erindi sem Félag forstöðumanna ríkisstofnana sendi ráðinu.