![Árið 2012 voru 505 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá embætti sýslumannsins í Reykjavík.]()
„Frysting lána hefur ekki gagnast neinum í sjálfu sér og bara gert málin verri,“ segir Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóð. Hann segir að uppboðum á fasteignum sé að fjölga. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, hefur sömu sögu að segja.