![Skíðasvæðið í Stafdal. Stúlka lemstraðist lítillega þegar vír í skíðalyftu fór út af braut sinni.]()
Stúlka á táningsaldri lemstraðist á skíðasvæðinu í Stafdal ofan við Seyðisfjörð um klukkan þrjú í dag þegar vír í skíðalyftu á svæðinu fór af braut sinni. Við það kastaðist stúlkan upp í loft og lenti illa, en hún er þó óbrotin. Var hún flutt á spítala til aðhlynningar og er þar enn.