![Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.]()
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði á Evrópuráðsþinginu í dag að stíga þyrfti varlega til jarðar við það að innleiða reglur hjá þjóðþingum sem miði að því að verja þingmenn fyrir kynferðisofbeldi og áreitni. Hann sagði hættu á að stjórnmálamenn nýttu sér slík úrræði til þess að koma pólitískum höggum á andstæðinga sína.