![Embætti landlæknis er til húsa á Barónsstíg 47]()
Eigandi Barónsstígar 47 þar sem embætti landlæknis er til húsa segir leigjendur bera ábyrgð á ástandi húsnæðisins. Meint rakavandamál í húsinu megi rekja til loftræstiskorts vegna lélegrar umgengni leigutakans. Þetta kemur fram í skriflegu svari Þorsteins Steingrímssonar eiganda hússins.