![Fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson svekktur í leikslok í kvöld.]()
Íslenska landsliðið í handknattleik karla tapaði fyrir Norður Makedóníu, 35:34, í undankeppni Evrópumótsins í Laugardalshöll. Dejan Manaskov skoraði sigurmarkið á síðustu sekúndu leiksins eftir að hafa náð frákasti þegar Björgvin Páll Gústavsson varði vítakast hans.