![Verslun Samkaupa/Strax á Þórshöfn.]()
„Við erum öll orðin langþreytt á því hvað stór hluti tekna heimilisins fer beint í mat og hreinlætisvörur. Hver einasta skemmtiferð til Akureyrar eða Egilsstaða endar á því að fylla bílinn algerlega af matvöru, við keyptum meira að segja „tengdamömmubox“ á bílinn til að geta verslað meira í lágvöruverslunum. Fyrir sex manna fjölskyldu eins og okkur þá munar þetta mjög miklu,“ sagði Kristín Heimisdóttir, ung húsmóðir á Þórshöfn.