![]()
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst á ný mánudaginn 10. júní með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um 150 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og koma þeir til landsins með sex F-2000 orrustuþotur, B767 eldsneytisvél og C130 birgðaflutningavél.