![Nauthólsvík í gær]()
„Það var ótrúlegt hvað fólk grillaði mikið í rigningunni, en núna eiginlega tryllist allt,“ segir Pétur Alan Guðmundsson, eigandi Melabúðarinnar. „Í þessu veðri þá grillar fólk allt; grænmeti, fisk og náttúrlega kjöt. Andrúmsloftið hjá fólkinu er líka svo miklu betra.“