![Friðsamleg mótmæli við Norræna húsið í dag.]()
Á annan tug ungliða í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði beið fyrir utan Norræna húsið á 10. tímanum í morgun með kröfuspjöld á lofti til að mótmæla komu Knud Bartels, hershöfðingja og formanns hermálanefndar NATO, til landsins. Ungliðarnir krefjast úrsagnar Íslands úr NATO.