![Samþykkt var á fjölmennum fundi í kvöld að stofna Hagsmunafélag íbúðaréttarhafa á Eir, (Híra).]()
Búið er að leggja fram beiðni til ríkissaksóknara og sérstaks saksóknara um rannsókn á málefnum hjúkrunarheimilisins Eirar. Þetta kom fram á stofnfundi Hagsmunafélags íbúðaréttarhafa á Eir í kvöld. Á fundinum kom fram að tilboð hefur verið lagt fram í allar eignir Eirar, en stjórn Eirar hafnaði því.