![Íbúðalánasjóður hefur selt 517 íbúðir til Leigufélagsins Kletts ehf.]()
Íbúðalánasjóður hefur nú selt 517 íbúðir, víðs vegar um landið, til Leigufélagsins Kletts ehf. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins.
Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað fyrir rúmu ári að stofna leigufélag sem yfirtæki og annaðist rekstur á fasteignum sjóðsins úti um allt land.