![Fundi strandríkjanna í makríldeilunni lauk í kvöld án samkomulags.]()
Fundi strandríkjanna í makríldeilunni lauk í kvöld án samkomulags. Með fundinum var ætlað að reyna til þrautar að ná samkomulagi um skiptingu veiðiheimilda í makríl. „Fullreynt er að samningur náist á þeim grundvelli sem lá fyrir milli Íslands og ESB í haust,“ segir sjávarútvegsráðherra.