![Haraldur Briem sóttvarnalæknir.]()
Ekki er vitað til þess að mislingarnir sem bárust hingað til lands með ungu barni í síðustu viku hafi smitast víðar. Helst var talin hætta á að smitið hefði borist til annarra barna á Barnaspítalanum. „Nú bara krossum við fingur og vonum að við fáum ekki fleiri tilfelli,“ segir sóttvarnarlæknir.