![Höfuðkúpur fórnarlamba þjóðarmorðsins í Rúanda eru nú til sýnis í kirkjunni í bænum Nyamata, þar sem einhver verstu voðaverkin voru framin árið 1994.]()
„Stundum finnst mér ég enn vera mennskur, en oft finnst mér ég hafa misst vitið,“ segir maður sem horfði upp samlanda sína, vopnaða sveðjum, slátra fjölskyldu hans í apríl 1994. Rúandamenn minnast þess nú að 20 ár eru liðin síðan út braust borgarastríð með einu blóðugasta þjóðarmorði 20. aldarinnar.