![Hagnaður íslenskra fyrirtækja hefur aukist mikið á sama tíma og tap fyrirtækja hefur minnkað. Þetta sést á tölum RSK fyrir skattárið 2012.]()
Rekstrarhagnaður og bókhaldslegur hagnaður íslenskra fyrirtækja hefur aldrei verið meiri en hann var árið 2012. Ljóst er að atvinnulífið náði þetta árið að taka mikið við sér eftir áföll áranna á undan þar sem met voru slegin í tapi. Þetta sést í samantekt í Tíund, tímariti Ríkisskattstjóra.